Síðast uppfært: 25/8/2026
Hæ og velkomin! Þakka þér fyrir að gefa þér tíma til að lesa þessa bókunarskilmála („skilmálarnir").
Þessir skilmálar eru mikilvægir þar sem þeir, ásamt staðfestingarpóstinum fyrir bókunina („bókunarstaðfestingin"), tengjast bókun þinni á ferðaþjónustu sem er gerð í gegnum vefsvæði samstarfsaðila. Þeir taka einnig til hvers konar samskipta sem þú kannt að eiga við okkur.
Til að bóka ferðaþjónustu þarftu að samþykkja þessa skilmála. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála skaltu ekki bóka ferðaþjónustu.
Við mælum með því að þú vistir eða prentir afrit af þessum skilmálum þegar þú bókar.
Í þessum skilmálum:
„við", „okkur" eða „okkar" vísar til Expedia, Inc., fyrirtækis í Washington með skráða skrifstofu að 1111 Expedia Group Way W, Seattle, WA 98119, Bandaríkjunum
„Samstarfsaðili" vísar til samstarfsaðila okkar í markaðssetningu sem rekur vefsvæði samstarfsaðila
„Vefsvæði samstarfsaðila" vísar til vefsvæðis, apps eða bókunartóls samstarfsaðila, sem gegnir hlutverki viðmóts á milli þín og ferðaþjónustuaðilanna, þar sem þú getur bókað ferðaþjónustu
„Bókun" vísar til bókunar á ferðaþjónustu í gegnum vefsvæði samstarfsaðila
„Expedia Travel" vísar til Travelscape, LLC, fyrirtækis með réttarstöðu lögaðila og aðsetur í Bandaríkjunum, með skráða skrifstofu að 5000 W. Kearney Street, Springfield, MO 65803, Bandaríkjunum
„Fyrirtækjasamstæða okkar" vísar til okkar og hlutdeildarfélaga og dótturfyrirtækja okkar
„Ferðaþjónustuaðili" vísar til þess ferðaþjónustuaðila sem útvegar þér ferðaþjónustu í gegnum vefsvæði samstarfsaðila
„Ferðaþjónusta" vísar til ferðaþjónustu sem fyrirtækjasamstæða okkar býður upp á og viðkomandi ferðaþjónustuaðili veitir fyrir bókun í gegnum vefsvæði samstarfsaðila, t.d. dvöl á gististað eða bílaleiga
„Þjónustudeild ferðamanna" vísar til þeirrar þjónustu fyrir ferðamenn sem þú hefur aðgang að í tengslum við bókunina þína (sem er annaðhvort þjónustudeild samstarfsaðilans fyrir ferðamenn eða þjónustudeild okkar fyrir ferðamenn) en samskiptaupplýsingarnar koma fram á vefsvæði samstarfsaðilans, og
„þú" vísar til þín, einstaklingsins sem framkvæmir bókunina.
Lestu þessa skilmála vandlega.
1. hluti Reglur og takmarkanir
Þessir skilmálar og aðrir skilmálar sem ferðaþjónustuaðilar veita gilda um bókunina þína („Reglur og takmarkanir").
Viðkomandi reglur og takmarkanir ferðaþjónustuaðilans sem þú velur verða gefnar upp í bókunarskrefinu (t.d. breytinga- og afbókunarreglur, innritunar- og brottfarartími gististaðar). Til að bóka þarftu að lesa og samþykkja reglur og takmarkanir ferðaþjónustuaðilans, sem og þessa skilmála, sem saman gilda um bókunina þína.
Ef þú brýtur gegn reglum og takmörkunum ferðaþjónustuaðila verður bókunin þín hugsanlega afbókuð og þér verður hugsanlega meinaður aðgangur að viðkomandi ferðaþjónustu. Þú gætir einnig tapað peningum sem greiddir eru fyrir slíka bókun en það fer eftir reglum og takmörkunum ferðaþjónustuaðilans.
Þegar greiðsla er innt af hendi við bókun kann það að vera svo í tilteknum löndum að Expedia Travel sé í hlutverki ferðaþjónustuaðila, í því skyni að gera ferðaþjónustuna aðgengilega fyrir þig, þar á meðal en ekki takmarkað við ferðaþjónustu sem veitt er í Evrópusambandinu samkvæmt 28. og 306.-310. gr. aðalvirðisaukaskattstilskipunar ESB [2006/112/EB] og samsvarandi löggjöf í hverju landi fyrir sig. Í slíkum tilvikum eru „Reglur og takmarkanir" þeir skilmálar sem undirliggjandi þjónustuaðilinn leggur fram (svo sem skilmálar og skilyrði gististaðar eða leigusamningur bílaleigufyrirtækis o.s.frv.).
2. hluti Reglurnar okkar
Vefsvæði samstarfsaðila er rekið af viðkomandi samstarfsaðila og öllum athugasemdum varðandi vefsvæði samstarfsaðilans (þar á meðal notkun þína á því eða, þar sem samstarfsaðilinn tekur við greiðslu þegar bókun þín er gerð, slíka greiðslu) ætti að beina til samstarfsaðilans.
Í sumum tilvikum getur samstarfsaðilinn innheimt sín eigin viðbótarbókunargjöld. Ef þú ert með spurningar um slík gjöld skaltu hafa samband við samstarfsaðilann. Fyrirtækjasamstæðan okkar er ekki tengd við eða ábyrg fyrir neinum slíkum gjöldum.
Til að bóka samþykkir þú að:
- þú munir aðeins bóka í persónulegum tilgangi og ekki í viðskiptalegum tilgangi
- hafa náð a.m.k. 18 ára aldri og hafa lagaheimild til að gera samninga
- allar upplýsingar sem þú veitir séu réttar, nákvæmar, gildar og ítarlegar
- ef þú bókar fyrir annarra hönd munir þú:
- afla þér leyfis þeirra áður en þú kemur fram fyrir þeirra hönd
- upplýsa viðkomandi um þessa skilmála (þ.m.t. reglur og takmarkanir) og tryggja að viðkomandi samþykki og fylgi slíkum skilmálum, og
- bera ábyrgð á öllum greiðslum, öllum beiðnum vegna breytinga/afbókana og öllum öðrum málum sem tengjast bókuninni, og
- ekki gera neinar rangar eða sviksamlegar bókanir.
Að því er varðar hvers konar efni eða upplýsingar (þ.m.t. allar ljósmyndir) sem birtast á vefsvæði samstarfsaðila í tengslum við alla ferðaþjónustu („efni"), samþykkir þú einnig að:
- fá ekki aðgang að, fylgjast með eða afrita neitt efni með því að nota þjark, vefskriðil, skrapara eða annan sjálfvirkan búnað af hvaða toga sem er, eða handvirkt ferli
- nota efnið ekki í neinum viðskiptalegum tilgangi
- fara ekki framhjá eða fara á svig við aðgerðir sem beitt er til að koma í veg fyrir eða takmarka aðgang að efninu, eða
- „ramma" ekki eða „spegla" eða á annan hátt fella einhvern hluta af efninu inn í annað vefsvæði eða app.
3. hluti Staðfesting bókunar
Bókunarstaðfestingin inniheldur meginatriði bókunar þinnar, svo sem lýsingu og verð á ferðaþjónustunni sem bókuð var.
Bókunarstaðfestingin þín og öll viðeigandi ferðagögn verða send á netfangið sem þú gefur upp þegar þú bókar. Hafðu samband við samstarfsaðilann ef þú færð ekki bókunarstaðfestinguna þína innan 24 klukkustunda frá því að þú bókar.
4. hluti Greiðsla
Verð
Verð ferðaþjónustunnar er eins og það birtist á vefsvæði samstarfsaðilans, nema um augljósa villu sé að ræða.
Verð á ferðaþjónustu eru breytileg og geta breyst hvenær sem er.
Verðbreytingar hafa ekki áhrif á bókanir sem þegar hafa verið samþykktar, nema um augljósa villu sé að ræða. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta allar villur í verði.
Ef augljós villa er til staðar og þú hefur gengið frá bókun geturðu haldið bókuninni með því að greiða rétt verð eða látið fella niður bókunina án viðurlaga. Hvorki okkur né samstarfsaðilanum ber skylda til að virða bókanir sem gerðar eru á röngu (lægra) verði, jafnvel eftir að þú hefur fengið bókunarstaðfestingu senda, ef þú hefðir augljóslega átt að taka eftir villunni.
Skattar
Verð ferðaþjónustunnar sem birt eru í gegnum vefsvæði samstarfsaðila geta innihaldið skatta eða endurheimtugjöld skatta. Til slíkra skatta eða endurheimtugjalda skatta geta talist fjárhæðir tengdar virðisaukaskatti, vöru- og þjónustuskatti, söluskatti, gistináttaskatti og öðrum sköttum af svipuðum toga.
Skattar eða endurheimtugjöld skatta eru almennt reiknuð eða áætluð út frá verðum ferðaþjónustunnar sem birt eru í gegnum vefsvæði samstarfsaðila áður en tekið er tillit til nokkurra afslátta (þar á meðal þeirra sem fjármagnaðir eru af okkur), afsláttarmiða og vildarfríðinda sem kunna að eiga við um bókun þína, nema þessir afslættir, afsláttarmiðar og vildarfríðindi teljist koma til lækkunar á því verði sem notað er við að reikna eða áætla skatta í því umdæmi sem bókunin heyrir undir.
Í tilteknum lögsagnarumdæmum gætir þú borið ábyrgð á að greiða staðbundna skatta sem skattyfirvöld á staðnum leggja á þig (s.s. borgarskatta eða ferðamannaskatta o.s.frv.). Fyrirtækjasamstæða okkar, samstarfsaðilinn (fyrir hönd fyrirtækjasamstæðu okkar) eða ferðaþjónustuaðilinn kann að innheimta slíka staðbundna skatta af þér. Samstarfsaðilinn (fyrir hönd fyrirtækjasamstæðu okkar) mun láta þig vita af öllum sköttum sem þú greiðir á staðnum áður en þú lýkur við bókunina, í þeim tilvikum sem ferðaþjónustuaðilinn hefur tilkynnt fyrirtækjasamstæðu okkar um slíka skatta.
Fjárhæð staðbundinna skatta getur breyst á milli bókunardags og dvalardags. Ef sköttum hefur verið breytt fyrir dvalardaginn gætir þú þurft að greiða hærri skatta.
Greiðsluferli
Þegar greiðsla er innt af hendi við bókun (kallað „Greiða núna" eins og skilgreint er í hluta 6.A í þessum skilmálum (Gisting) hér að neðan) mun fyrirtækið sem tekur við þeirri greiðslu (í gegnum greiðslumiðlun þriðju aðila) og skuldfærir greiðslumátann þinn vera annaðhvort:
- samstarfsaðilinn (sem kemur fram fyrir hönd fyrirtækjasamstæðu okkar), eða
- viðkomandi fyrirtæki, eins og fram kemur við hliðina á viðeigandi gjaldmiðli í töflunni hér að neðan:
| Gjaldmiðill | Fyrirtæki okkar sem tekur við greiðslunni |
|---|---|
| USD, CAD, COP, KWD, ARS | Travelscape, LLC., Bandaríkjunum |
| EUR, NOK, DKK, SEK, ILS | Travel Partner Exchange S.L., Spáni |
| GBP | Travel Partner Exchange UK Limited, Bretlandi |
| AUD | Travelscape, LLC., Ástralíu |
| NZD | Travel Partner Exchange New Zealand Limited, Nýja-Sjálandi |
| BRL | Expedia do Brasil Agencia de Viagens e Turismo LTDA, Brasilíu |
| MXN | Expedia Mexico, S de R.L. de C.V., Mexíkó |
| INR | Hotels.com India Private Limited, Indlandi Travel Partner Exchange Singapore Pte. Ltd., Singapúr Travel Partner Exchange S.L., Spáni |
| KRW | Travel Partner Exchange Korea Co., Ltd., Suður-Kóreu |
| JPY | Travel Partner Exchange Japan KK, Japan |
| CNY, SAR, IDR, AED, TRY, TWD, ZAR, PHP, VND | Travel Partner Exchange S.L., Spáni Travelscape, LLC., Bandaríkjunum |
| THB, MYR | Travel Partner Exchange S.L., Spáni Travel Partner Exchange Singapore Pte. Ltd., Singapúr |
| HKD | Travel Partner Exchange Hong Kong Limited, Hong Kong |
| CHF | Travel Partner Exchange Switzerland Sarl, Sviss |
| SGD | Travel Partner Exchange Singapore Pte. Ltd., Singapúr |
Þrátt fyrir málsgreinina um gildandi lög og lögsagnarumdæmi í 10. hluta þessara skilmála (Almennt), munu lögin sem gilda um greiðsluferli, þar sem eitt af fyrirtækjunum (eins og fram kemur í töflunni hér að ofan) tekur við greiðslu frá þér og skuldfærir greiðslumáta þinn, vera gildandi lög á staðnum þar sem slíkt fyrirtæki er staðsett.
Persónuverndaryfirlýsing okkar veitir upplýsingar um hvernig við notum greiðsluupplýsingar þínar þegar eitt af fyrirtækjunum (eins og fram kemur í töflunni hér að ofan) tekur við greiðslu frá þér.
Staðfesting greiðslu
Þú heimilar eftirfarandi eftir því hver skuldfærir greiðslumátann þinn:
- samstarfsaðilanum,
- viðkomandi fyrirtæki (eins og fram kemur í töflunni hér að ofan) eða
- ferðaþjónustuaðilanum,
að staðfesta greiðslumátann þinn með því að afla greiðsluheimildar, innheimta lágmarksgjald eða með öðrum staðfestingarleiðum, og eftir staðfestingu, að skuldfæra greiðslumátann þinn.
Gjöld innheimt af bönkum
Sumir bankar og kortaútgefendur leggja gjöld á alþjóðleg viðskipti eða viðskipti yfir landamæri. Ef þú bókar til dæmis með korti sem er gefið út í öðru landi en þar sem ferðaþjónustuaðili er staðsettur, eða ef þú velur að eiga viðskipti í gjaldmiðli sem er annar en gjaldmiðill vefsvæðis samstarfsaðila, getur kortaútgefandi þinn innheimt af þér gjöld fyrir alþjóðlega færslu eða færslu yfir landamæri.
Sumir bankar og kortaútgefendur leggja einnig á gjöld fyrir umreikning gjaldmiðils. Ef þú bókar t.d. í öðrum gjaldmiðli en gjaldmiðli kreditkortsins þíns getur kortaútgefandi þinn umbreytt upphæð bókunarinnar í gjaldmiðil kreditkortsins og rukkað þig um umreikningsgjald.
Hafðu samband við bankann þinn eða kortaútgefandann ef þú ert með einhverjar spurningar um þessi gjöld eða gengið sem notað var fyrir bókunina þína. Fyrirtækjasamstæðan okkar er ekki tengd við eða ábyrg fyrir neinum gjöldum sem tengjast mismunandi gengi og gjöldum kortaútgefanda.
Umreikningur gjaldmiðils
Öll umreikningsgengi gjaldmiðla sem birtast á vefsvæði samstarfsaðila í tengslum við ferðaþjónustuna eru byggð á opinberum gögnum og núverandi gengi gjaldmiðla sem getur hafa breyst frá bókun þegar komið er að ferðatíma. Slíkar gengisupplýsingar eru aðeins gefnar upp í upplýsingaskyni og fyrirtækjasamstæða okkar ábyrgist ekki nákvæmni slíkra upplýsinga um umreikningsgengi þar sem þær eru ekki undir okkar stjórn.
Svik
Ef bókun, að okkar sanngjarna mati, ber merki um svindl, misnotkun, tengingu við einstakling eða aðila sem sætir refsiaðgerðum af hálfu yfirvalda eða annað grunsamlegt athæfi munum við eða samstarfsaðilinn hugsanlega óska eftir frekari upplýsingum frá þér.
Ef:
- við teljum með rökstuddum hætti að bókun sé tengd svikum, misnotkun, einstaklingi eða aðila sem sætir refsiaðgerðum af hálfu yfirvalda eða grunsamlegri virkni, eða
- þú veitir okkur ekki frekari upplýsingar sem við kunnum að óska eftir ef um er að ræða bókun sem sýnir merki um svik, misnotkun, tengsl við einstakling eða aðila sem sætir refsiaðgerðum af hálfu yfirvalda eða aðra grunsamlega virkni,
kunnum við að afturkalla allar bókanir sem tengdar eru nafni þínu og netfangi og höfða mál, þar á meðal til að láta þig sæta ábyrgð vegna tjóns.
Hafðu samband við þjónustudeild ferðamanna varðandi afbókun.
5. hluti Afbókun eða breyting á bókun
Afbókun eða breyting af þinni hálfu
Hægt er að afbóka eða gera breytingar (með tilliti til ferðadagsetninga, áfangastaðar, upphafsstaðar ferðar, gististaðar eða samgöngumáta) á bókun með því að hafa samband við þjónustudeild ferðamanna.
Þú hefur ekki sjálfkrafa rétt til að hætta við eða breyta bókun nema viðkomandi ferðaþjónustuaðili heimili það samkvæmt sínum reglum og takmörkunum (sem þú getur lesið áður en þú bókar).
Ferðaþjónustuaðilar gætu innheimt gjöld fyrir að afbóka (að hluta til eða í heild) eða breyta bókun. Slík gjöld verða tilgreind í reglum og takmörkunum. Þú samþykkir að greiða öll gjöld sem þú stofnar til. Hafðu í huga að ef um er að ræða breytingu mun verðið á nýju fyrirkomulagi byggjast á gildandi verði á þeim tíma sem þú biður um að gera breytinguna. Verðið er hugsanlega ekki það sama og þegar þú bókaðir upphaflega ferðaþjónustuna. Verð hækkar yfirleitt því nær brottfarardegi sem breytingin er gerð.
Lestu viðkomandi reglur og takmarkanir svo þú vitir hvaða skilmálar eiga við um þína bókun.
Ef þú vilt afbóka eða breyta einhverjum hluta bókunar og slík afbókun eða breyting er leyfð af viðkomandi ferðaþjónustuaðila er hugsanlegt að við innheimtum umsýslugjald, til viðbótar við sérhver gjöld sem ferðaþjónustuaðilinn kann að innheimta. Ef greiða þarf slíkt umsýslugjald færðu tilkynningu um það áður en þú samþykkir að halda áfram með breytingu/afbókun.
Önnur afbókun eða breyting
Við (og viðkomandi ferðaþjónustuaðili) getum afbókað bókunina ef heildargreiðsla fyrir bókunina, eða sérhvert viðeigandi afbókunar-/breytingargjald eða gjald vegna bókunar, berst ekki á réttum tíma.
Af ýmsum ástæðum (svo sem vegna þess að gististaður er yfirbókaður vegna tengingarvandamála eða gististaður er lokaður vegna fellibyls o.s.frv.) er hugsanlegt að ferðaþjónustuaðili, samstarfsaðili eða við afbókum bókun eða gerum breytingar á henni. Ef þetta gerist munum við eða samstarfsaðilinn gera viðeigandi ráðstafanir til að láta þig vita eins fljótt og auðið er og bjóða upp á aðra valkosti/aðstoð þegar það er hægt eða endurgreiðslu.
Endurgreiðsla
Þegar samstarfsaðili (eða greiðslumiðlun þriðja aðila) innheimtir greiðslu frá þér við bókun skaltu hafa samband við samstarfsaðilann til að spyrjast fyrir um endurgreiðsluferlið.
Þegar viðkomandi fyrirtæki (eins og fram kemur í töflunni í 4. hluta þessara skilmála (Greiðsla) hér að ofan) innheimtir greiðslu frá þér við bókun verða allar endurgreiðslur millifærðar aftur til þín á greiðslumátann sem þú notaðir við upphaflegu bókunina. Aðilinn sem tók við upphaflegu greiðslunni þarf að sjá um slíkar endurgreiðslur.
Þegar ferðaþjónustuaðilinn innheimtir greiðslu frá þér á dvalartímanum skaltu hafa samband við viðkomandi ferðaþjónustuaðila til að spyrjast fyrir um endurgreiðsluferlið.
6. hluti Sérstakir skilmálar ferðaþjónustu
Í þessum hluta er að finna upplýsingar um skilmála sem eiga við um tiltekna ferðaþjónustu sem ferðaþjónustuaðili veitir. Þessar upplýsingar eru ekki tæmandi og koma ekki í stað viðeigandi reglna og takmarkana sem þú færð upplýsingar um áður en þú bókar.
Hver ferðaþjónusta kann að vera boðin ein og sér eða sem hluti af pakka og fellur undir viðeigandi reglur og takmarkanir ferðaþjónustuaðilans. Lestu líka þennan hluta sem mun einnig eiga við um bókunina þína, eins og við á. Ef ósamræmi er á milli þessa hluta og viðeigandi reglna og takmarkana gilda viðeigandi reglur og takmarkanir.
Að því er varðar þessa skilmála og allar bókanir sem gerðar eru á vefsvæði samstarfsaðila eru hvorki við né nokkur meðlimur í fyrirtækjasamstæðu okkar:
- skipuleggjandi eða smásali ferðapakka, eða
- starfandi sem fagaðili og/eða leiðbeinandi í þeim tilgangi að koma á tengdri ferðatilhögun
samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2302 (tilskipun um pakkaferðir og tengda ferðatilhögun).
A. Gisting
Vefsvæði samstarfsaðilans gæti boðið þér að greiða núna eða greiða síðar (eins og skilgreint er hér að neðan). Hafðu í huga að skattar og gjöld kunna að vera breytileg eftir því hvaða greiðsluvalkost þú velur. Skattar og gengi erlendra gjaldmiðla geta tekið breytingum á tímanum sem líður á milli bókunar og dvalar þinnar.
Greiða núna
Ef þú velur að greiða fyrir bókaða ferðaþjónustu við bókun („Greiða núna"):
- mun samstarfsaðilinn, eða
- viðkomandi fyrirtæki (eins og fram kemur í töflunni í 4. hluta þessara skilmála (Greiðsla)),
almennt skuldfæra bókunarupphæðina á greiðslumátann þinn við bókun.
Greiða síðar
Ef þú velur að greiða fyrir ferðaþjónustuna meðan á dvöl þinni stendur („Greiða síðar") mun ferðaþjónustuaðilinn almennt skuldfæra upphæðina á greiðslumátann þinn í gjaldmiðli staðarins meðan á dvöl þinni stendur eða láta þig vita með öðrum hætti í bókunarferlinu.
Tryggingargjald
Sumir ferðaþjónustuaðilar gera kröfu um greiðslukort eða innborgun í reiðufé við innritun vegna aukakostnaðar sem gæti komið til á meðan dvölinni stendur. Slík innborgun tengist ekki neins konar greiðslu sem samstarfsaðilinn eða viðkomandi fyrirtæki fær (eins og fram kemur í 4. hluta þessara skilmála (Greiðsla)) fyrir bókunina þína.
Fyrsta nóttin ekki nýtt
Ef þú mætir ekki fyrir fyrstu gistinóttina sem þú bókaðir en hyggst innrita þig fyrir næstu nætur skaltu láta ferðaþjónustuaðilann vita af því fyrir upphaflegan innritunardag. Ef þú staðfestir þetta ekki gæti öll bókunin þín verið afbókuð. Þú átt eingöngu rétt á endurgreiðslum vegna ónýttrar bókunar í samræmi við viðeigandi reglur og takmarkanir ferðaþjónustuaðilans.
Einkunnir
Fyrirtækjasamstæða okkar getur ekki ábyrgst að tiltekin einkunn sem birtist á vefsvæði samstarfsaðila sé rétt.
B. Bílar
Greiðsla
Fyrir tilteknar bókanir gæti ferðaþjónustuaðilinn, ekki fyrirtækjasamstæða okkar eða samstarfsaðilinn, innheimt greiðslu fyrir bókun þína á bílaleigubíl.
Þegar þú sækir bílaleigubílinn verður þú/ökumaðurinn að framvísa gildu kreditkorti. Þú verður að athuga hvaða kreditkortum ferðaþjónustuaðilinn tekur við. Ekki er tekið við debetkortum. Ferðaþjónustuaðilinn gæti sent heimildarbeiðni til útgefanda kreditkortsins á leigutímanum til að sækjast eftir innborgun. Þú/ökumaðurinn ættuð að tryggja að þið séuð með næga úttektarheimild fyrir það. Hugsanlega þarf að framvísa tveimur kreditkortum fyrir sumar stærri gerðir bíla.
Ef þú fylgir ekki ofangreindum reglum er ekki víst að ferðaþjónustuaðilinn láti þig hafa bílinn og þú gætir þurft að greiða upphæð sem nemur allt að heildarverði bílsins, í samræmi við reglur og takmarkanir.
Viðbætur
Þú gætir þurft að greiða ferðaþjónustuaðilanum viðbótargjöld á staðnum. Þessi gjöld geta til dæmis náð yfir eldsneytisáfyllingu, vetrardekk, gjöld fyrir viðbótarökumann, aukagjöld fyrir unga ökumenn, barnabílstóla og afhendingar- og skilagjöld o.s.frv. Við og ferðaþjónustuaðilinn berum ekki ábyrgð á greiðslu slíkra viðbótargjalda. Ekki er hægt að tryggja að orðið verði við beiðnum um aukabúnað (svo sem barnabílstóla) þar sem það er háð framboði.
Þú gætir þurft að greiða ferðaþjónustuaðilanum sjálfsábyrgð ef um er að ræða þjófnað eða tjón á bílaleigubílnum. Þetta fer eftir ferðaþjónustuaðilum og leigulandi. Með því að kaupa valfrjálsa aukatryggingu á staðnum getur þú afnumið/lækkað sjálfsábyrgðina. Við og ferðaþjónustuaðilinn berum ekki ábyrgð á neinni sjálfsábyrgð eða veitingu aukatrygginga.
Eldsneyti er yfirleitt ekki innifalið í leiguverðinu. Í sumum löndum gætu sumir ferðaþjónustuaðilar rukkað þig fyrir eldsneytisáfyllingu þegar bílnum er skilað. Nema um annað sé samið verður þú að skila bílaleigubílnum í sama útibú ferðaþjónustuaðilans og hann var sóttur.
Afhending og notkun bílaleigubíla
Ökumenn verða yfirleitt að vera á aldrinum 21 til 75 ára en það getur verið mismunandi eftir viðkomandi ferðaþjónustuaðila og leigulandi. Þú berð ábyrgð á því að athuga þetta hjá ferðaþjónustuaðilanum. Viðbótargjöld kunna að eiga við ef ökumaður er yngri en 25 ára eða eldri en 70 ára.
Þegar þú sækir bílaleigubílinn verður þú/ökumaðurinn að framvísa fullgildu ökuskírteini fyrir þann flokk ökutækis sem þú leigir. Alþjóðlegar bílaleigur kunna að vera með aðrar kröfur um ökuskírteini. Kynntu þér vandlega hvaða gögn ferðaþjónustuaðilinn gerir kröfu um að séu lögð fram. Til dæmis er gerð krafa um alþjóðlegt ökuskírteini ef ökuskírteinið er ekki á tungumáli sem notar latneska stafrófið, og ef bíllinn er sóttur í ESB-landi af einstaklingi sem er með ökuskírteini gefið út utan ESB er einnig gerð krafa um alþjóðlegt ökuskírteini. Einnig kann að vera þörf á viðbótargögnum, svo sem vegabréfi eða allt að tvenns konar sönnun á nafni og heimilisfangi.
Yfirleitt er þér ekki heimilt að fara með bílaleigubílinn út fyrir leigulandið, eða á ferjum, og frekari takmarkanir kunna að eiga við.
Afbókanir og ónotaðir leigudagar
Engin endurgreiðsla verður boðin vegna bókana sem eru afbókaðar innan 6 klukkustunda frá afhendingartíma eða vegna ónotaðra leigudaga.
C. Afþreyingarkostir
Sumir ferðaþjónustuaðilar sem bjóða upp á afþreyingarkosti krefjast þess hugsanlega að þú skrifir undir skjal þar sem þjónustuaðilinn afsalar sér ábyrgð áður en þú tekur þátt ferðaþjónustunni sem boðið er upp á hverju sinni.
Ferðaþjónusta sem tengist afþreyingarkostum er yfirleitt ekki framseljanleg eða uppfyllir ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu eða breytingar, nema ferðaþjónustuaðilinn felli sjálfur niður viðkomandi ferðaþjónustu.
7. hluti Bótaábyrgð
Ábyrgð vegna ferðaþjónustu
Ferðaþjónustuaðilarnir bjóða þér upp á ferðaþjónustuna.
Í tilfellum þar sem Expedia Travel er ferðaþjónustuaðilinn, þá að því marki sem lög leyfa og með fyrirvara um undanþágur og takmarkanir í þessum skilmálum eða viðeigandi reglum og takmörkunum, mun Expedia Travel aðeins bera ábyrgð gagnvart þér á beinu tjóni sem:
- varð vegna einhvers sem bæði Expedia Travel og þú hefðuð getað séð fyrir
- varð vegna einhvers sem kom í raun fyrir þig eða þú varðst fyrir, og
- rekja má beint til aðgerða Expedia Travel við að veita ferðaþjónustuna.
Bótaábyrgð annarra ferðaþjónustuaðila gagnvart þér verður eins og fram kemur í viðeigandi reglum og takmörkunum. Ef Expedia Travel er ekki ferðaþjónustuaðilinn ber Expedia Travel ekki ábyrgð gagnvart þér vegna ferðaþjónustu sem veitt er af öðrum ferðaþjónustuaðilum, að því marki sem lög leyfa.
Bótaábyrgð okkar
Að því marki sem lög leyfa, og með fyrirvara um undanþágur og takmarkanir í þessum skilmálum, ber fyrirtækjasamstæða okkar enga ábyrgð á:
- hvers kyns ferðaþjónustu sem ferðaþjónustuaðilarnir bjóða þér
- athöfnum, villum, yfirsjónum, yfirlýsingum, ábyrgðum eða vanrækslu slíkra ferðaþjónustuaðila, eða
- líkamstjóni, andláti, eignatjóni eða öðru tjóni eða kostnaði sem leiðir af ofangreindu.
Ferðaþjónustuaðilarnir veita upplýsingar þar sem ferðaþjónustunni er lýst. Þessar upplýsingar eru m.a. upplýsingar um ferðaþjónustuna, verð og viðeigandi reglur og takmarkanir o.s.frv. Þessar upplýsingar eru birtar í gegnum vefsvæði samstarfsaðila. Ferðaþjónustuaðilar bera ábyrgð á því að slíkar upplýsingar séu nákvæmar, fullnægjandi og uppfærðar. Fyrirtækjasamstæða okkar skal ekki bera ábyrgð á neinni ónákvæmni í slíkum upplýsingum, nema og aðeins ef fyrirtækjasamstæða okkar hefur með beinum hætti orsakað slíka ónákvæmni (og þetta á einnig við um einkunnir gististaða sem eru einungis ætlaðar til upplýsingar og eru hugsanlega ekki opinberar einkunnir). Fyrirtækjasamstæða okkar ábyrgist ekki framboð á tiltekinni ferðaþjónustu.
Myndir og teikningar sem tengjast ferðaþjónustunni á vefsvæði samstarfsaðila eru einungis birtar til upplýsinga um stig og gerð gistingar.
Birting ferðaþjónustu í gegnum vefsvæði samstarfsaðila telst ekki vera stuðningur eða meðmæli með slíkri ferðaþjónustu af hálfu fyrirtækjasamstæðu okkar.
Fyrirtækjasamstæða okkar afsalar sér, að því marki sem lög leyfa, allri ábyrgð á og kröfum um að:
- netþjónar okkar eða tölvupóstur sem fyrirtækjasamstæða okkar sendir sé án vírusa eða annarra skaðlegra atriða og/eða
- allt efni á netþjónum okkar eða í tölvupósti sem fyrirtækjasamstæða okkar sendir verði án truflana eða villulaust eða að gallar sem upp koma verði lagfærðir.
Að því marki sem lög leyfa og með þeim takmörkunum sem mælt er fyrir um í þessum skilmálum ber fyrirtækjasamstæða okkar enga ábyrgð á neins konar beinu, óbeinu, refsiverðu, sértæku, tilfallandi eða afleiddu tapi eða tjóni sem kemur til vegna:
- ferðaþjónustunnar,
- notkun vefsvæðis samstarfsaðila,
- tafa eða vangetu til að nota vefsvæði samstarfsaðila, eða
- notkunar þinnar á tenglum á vefsvæði samstarfsaðila,
hvort sem um er að ræða vanrækslu, samningsbrot, skaðabótaskyldu, stranga skaðabótaábyrgð, lög um neytendavernd eða annað og jafnvel þótt fyrirtækjasamstæðu okkar hafi verið kunnugt um möguleikann á slíku tjóni.
Hvað varðar ábyrgð vegna skuldbindinga okkar samkvæmt þessum skilmálum, eða ef við teljumst bera ábyrgð á tapi eða tjóni samkvæmt þessum skilmálum, með fyrirvara um undanþágur og takmarkanir í þessum skilmálum og að því marki sem lög leyfa, þá berum við aðeins ábyrgð gagnvart þér vegna beins tjóns sem:
- varð vegna einhvers sem bæði við og þú hefðum getað séð fyrir,
- varð vegna einhvers sem kom í raun fyrir þig eða þú varðst fyrir, og
- rekja má beint til aðgerða okkar.
Þessi takmörkun bótaábyrgðar endurspeglar dreifingu áhættu milli okkar og þín. Þær takmarkanir sem skilgreindar eru í þessum skilmálum munu halda sér og gilda jafnvel þótt eitthvert þeirra takmörkuðu úrræða sem tilgreind eru í þessum skilmálum hafi ekki náð grunnmarkmiðum sínum. Takmarkanir á bótaábyrgð sem koma fram í þessum skilmálum skulu koma fyrirtækjasamstæðu okkar til góða.
Sérhverjar óviðráðanlegar aðstæður, þar með talið rof á samskiptamáta eða verkfall (flugfélaga, gististaða eða flugumferðarstjóra, eins og við á) mun leiða til stöðvunar á skuldbindingum þessa skilmála sem verða fyrir áhrifum af óviðráðanlegu aðstæðunum. Í slíkum tilvikum ber aðilinn sem verður fyrir áhrifum af óviðráðanlegum aðstæðum ekki ábyrgð vegna vanefnda á slíkum skuldbindingum.
8. hluti Persónuvernd þín og persónuupplýsingar
Við leggjum áherslu á persónuvernd, trúnað og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem okkur er treyst fyrir. Við munum safna og vinna úr persónuupplýsingum þínum í samræmi við persónuverndaryfirlýsingu okkar þegar eitt af fyrirtækjunum (eins og fram kemur í töflunni í 4. hluta þessara skilmála (Greiðsla) hér að ofan) tekur við greiðslu frá þér.
Frekari upplýsingar um það hvernig við vinnum úr persónuupplýsingum þínum og hvernig þú getur nýtt þér réttindi þín er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar.
Þú samþykkir að þú munir vernda persónuupplýsingar ferðaþjónustuaðilans og annarra þriðju aðila af sömu kostgæfni og þú verndar eigin trúnaðarupplýsingar (með því að beita raunhæfri varkárni, hið minnsta) og, að því marki sem lög leyfa, takir á þig alla ábyrgð á misnotkun, tapi eða óheimilum flutningi slíkra upplýsinga.
9. hluti Þjónustudeild ferðamanna og kvartanir
Fyrirspurnir eða beiðnir um upplýsingar eða kvartanir meðan á ferð stendur skal senda á samskiptaupplýsingar þjónustudeildar ferðamanna sem fram koma á vefsvæði samstarfsaðilans.
Kvartanir sem berast eftir að ferð lýkur skal senda með tölvupósti til þjónustudeildar ferðamanna sem tekur á móti kvörtunum fyrir hönd ferðaþjónustuaðilanna.
Láttu þjónustudeild ferðamanna eða viðkomandi ferðaþjónustuaðila vita af öllum vandamálum sem koma upp í tengslum við ferðaþjónustuna sem þú bókaðir áður en ferðin hefst eða meðan á henni stendur þar sem það er mögulegt. Þetta aðstoðar þjónustudeild ferðamanna við að leysa málið við fyrsta tækifæri og takmarkað tjónið sem þú annars verður fyrir. Ef þú greinir ekki frá vandamálum áður en ferðalag hefst eða meðan á því stendur þegar það hefði verið mögulegt getur það komið í veg fyrir að þjónustudeild ferðamanna og ferðaþjónustuaðilinn fái tækifæri til að skoða og leysa úr vandamálinu á meðan þú ert á ferðalaginu. Þetta getur haft áhrif á réttindi þín samkvæmt þessum skilmálum, til dæmis með því að lækka bætur sem þú átt rétt á og mögulega fella þær alfarið niður.
Ef þú getur ekki komið vandamáli á framfæri varðandi ferðaþjónustuna sem þú bókaðir fyrir ferðina eða meðan á henni stendur skaltu láta þjónustudeild ferðamanna eða viðkomandi ferðaþjónustuaðila vita eins fljótt og auðið er að ferðinni lokinni. Við hvetjum þig til að leggja fram kvartanir innan 30 daga frá ferðalaginu.
10. hluti Almennt
Gildandi lög og lögsagnarumdæmi
Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum. Þú samþykkir að íslenskir dómstólar fari einir með lögsögu og varnarþing í deilumálum sem upp kunna að koma vegna eða í tengslum við þessa skilmála.
Trygging
Verðin sem birtast innihalda ekki ferðatryggingu nema annað sé tekið fram. Við ráðleggjum þér að kaupa tryggingu sem gildir um afleiðingar tiltekinna afbókana og tilteknar áhættur (til dæmis kostnað við flutning aftur heim ef slys eða veikindi koma upp). Þú berð ábyrgð á því að tryggingavernd þeirra trygginga sem þú kaupir sé fullnægjandi.
Misbrestur á að framfylgja
Verði misbrestur eða töf á því að við framfylgjum sérhverju ákvæði þessara skilmála hamlar það ekki rétti okkar til að framfylgja því sama ákvæði eða öðru ákvæði / öðrum ákvæðum skilmálanna í framtíðinni.
Ákvæði sem ekki er hægt að framfylgja
Ef dómstóll eða annað yfirvald með viðeigandi lögsögu kemst að raun um að ákvæði (eða hluti ákvæðis) í þessum skilmálum sé ógilt, ólöglegt eða óframkvæmanlegt skal það ákvæði (eða hluti ákvæðis), ef þess er þörf, ekki teljast sem hluti af þessum skilmálum hvað þig varðar. Slík tilvik skulu ekki hafa áhrif á gildi og framfylgni hinna ákvæðanna.
Samningurinn í heild sinni
Þessir skilmálar mynda samninginn í heild sinni milli þín og okkar hvað varðar bókunina þína. Þeir koma í stað allra samskipta sem áttu sér stað fyrir eða eiga sér stað samtímis (hvort sem þau eru rafræn, munnleg eða skrifleg) milli þín og okkar um bókunina þína.
Framsal
Okkur er heimilt, en þér ekki, að framselja, fá undirverktaka eða útvista réttindum, skyldum eða skuldbindingum samkvæmt þessum skilmálum. Við munum þó ekki gera það með neinum þeim hætti sem verður til að draga úr réttindum eða ábyrgðum sem þú hefur samkvæmt þessum skilmálum.
Réttindi þriðja aðila
Utan þess sem sérstaklega er tekið fram í þessum skilmálum er engum hluta þessara skilmála ætlað að vera framfylgt af einstaklingi sem er ekki aðili að þessum skilmálum. Ekki þarf samþykki þriðja aðila til að falla frá, breyta eða segja upp neinum hluta þessara skilmála. Þessir skilmálar hafa ekki í för með sér nein réttindi samkvæmt gildandi lögum eða reglugerðum í tengslum við réttindi þriðja aðila til að framfylgja sérhverjum hluta þessara skilmála.
Gildistími skuldbindinga eftir uppsögn
Öll ákvæði þessara skilmála, sem fela í sér með skýrum hætti eða eru þess eðlis að þau feli í sér skuldbindingar sem eru til staðar eftir gildistíma eða uppsögn þessara skilmála, skulu halda gildi sínu eftir slíkan gildistíma eða uppsögn.
11. hluti Skráning
Seljandi ferðaþjónustu: Expedia, Inc. er skráður seljandi ferðaþjónustu í hverju neðangreindra ríkja:
- Skráningarnúmer í Kaliforníu: 2029030-50
- Skráningarnúmer í Flórída: ST31901
- Skráningarnúmer á Hawaii: TAR-5461
- Skráningarnúmer í Washington: 601975803
Skráning sem seljandi ferðaþjónustu í Kaliforníu telst ekki vera samþykki ríkisins.
Skráning skatta í New York-ríki
Greiða þarf söluskatt New York og gistiskatt New York-borgar, þar sem það á við, fyrir dvöl þína á gististaðnum. Fyrir bókanir sem á að „Greiða núna" er söluskattsnúmer Travelscape, LLC í New York 880392667 og hótelgistingarskattsnúmer þess í New York-borg er 033960.
Smelltu hér að neðan til að fá frekari upplýsingar: